JobConnect

Þjónustu og sölufulltrúi

  • Fagkaup
  • Reykjavík, Iceland
  • ISK 5,160,000 – ISK 6,240,000

Framtíðarstarf hjá Johan Rönning

Johan Rönning óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulipran starfsmann í verslun sína að Klettagörðum 25, Reykjavík.

Starf á þjónustu og móttökuborði Johan Rönning er fjölbreytt og lifandi starf. Að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina er lykilþáttur í starfinu ásamt því að sinna alhliða verslunar og þjónustustörfum.

Helstu verkefni starfsmanns eru þessi:

  • Þjónusta til viðskiptavina á mótttökuborði í verslun
  • Almennt afgreiðslustarf, ráðgjöf og aðstoð til viðskiptavina og samstarfsfólks
  • Tiltekt pantana og áfyllingar í verslun
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann

Hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund
  • reynsla af þjónustu og/ eða sölustarfi er kostur
  • Stundvísi og góð framkoma
  • Góð íslenskukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Snyrtimennska
  • 20 ára aldurstakmark
  • Öguð og vönduð vinnubrögð

Johan Rönning tilheyrir Fagkaupum. Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 starfsmenn í ólíkum störfum fyrirtækisins.

Lögð er áhersla á góðan starfsanda, samvinnu starfsfólks og öruggt vinnuumhverfi.

Við hvetjum áhugasama að sækja um starfið óháð aldri, kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur er til 10.okt. 2026

Skills

  • Customer Service
  • Point of Sale (POS)
  • Sales
  • Inventory Management
  • Order Fulfillment
  • Icelandic
  • Communication

Related jobs

FagkaupApply for this job